English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Fréttir

12.10.10

Team biogas er í forustu í STCC mótaröðinni þrátt fyrir reglur til að minka hröðun metanbílsins

Sænska liðið Team biogas.se er í forustu í STCC¹ mótaröðinni á bíl sínum VW Scirocco sem gengur fyrir metan eldsneyti. Árangur liðsins þykir markverður um margt og ekki hvað síst sökum þess að mótshaldarar fyrirskipuðu að draga þyrfti úr hröðunargetu metanbílsins með lækkun á turbo-þrýstingi um 0,05 bör. Fyrirskipunin kom í kjölfar þess að metanbíllinn komst afgerandi hratt á beinu köflum keppnisbrautarinnar. 

Liðstjórinn, Tommy Kristoffersson, var snöggur að varpa ljósi á samhengið og áréttaði að fyrirskipunin undirstriki að liðinu hafi tekist ætlunarverk sitt og sé á réttri leið í samstarfi sínu við E.ON² og Volkswagen. 

Hraðabreyting metanbílsins frá 0-160 km/klst (0-100 mph) tekur styst 4,5 sekúndum og hámarkshrað bílsins er 240 km/klst. Vélin er 1998 cc fjögurra strokka með fjórum lokum (16 lokar), er aðlöguð að turbo virkni fyrir metangas og skilar um 280 Nm hk/310.

Þýtt og endursagt - sjá frétt

¹ STCC - Swedish Touring Car Championship - mótaröð í kappakstri breyttra götubíla sem vekur mikla athygli. Keppnin miðast ekki eingöngu við notkun á umhverfismildu eldsneyti. Af bensínbílum sem taka þátt í keppninni má nefna bíla frá Volvo, BMW, Romeo og SEAT.
² E.ON - Energy On , þýskt orkufyrirtæki.

 

Til baka