Fréttir
Frábær tímamót í fólksbílarekstri Reykjavíkurborgar – óskar eftir 49 fólksbifreiðum sem nýtt geta íslenskt metan í akstri.
Reykjvíkurborg hefur stigið nokkur markverð heillaspor á vegferð orkukerfisskipta í samgöngum í borginni á síðustu misserum. Í gær birtist frétt í fjölmiðlum um ósk borgaryfirvalda um tilboð í
49 fólksbíla sem nýtt geta metan eldsneyti í akstri og skal tilboðum skilað eigi síðar en 12. maí næstkomandi. Óskað er eftir minni fólksbífreiðum sem einkum verða notaðir vegna heimahjúkrunar í borginni.
Fyrr á þessu ári samþykktu borgaryfirvöld að leita leiða til að auka fjölda metan-strætisvagna í borginn úr tveimur, sem verið hafa í daglegri þjónustu við borgarbúa í 6 ár, í 17 á næstu árum. Þá hefur borgin allt frá árinu 2005 starfrækt sorphirðubíla á höfuðborgarsvæðinu sem gang eingöngu fyrir metaneldsneyti og svo komið að allir slíkir bíla ganga í dag fyrir íslensku metani. Áherslur borgaryfirvalda um aukna nýtingu á metaneldsneyti í samgöngum ríma vel við þá þróun sem hefur átt sér stað um allan heim og þá vitundarvakningu sem hefur átt sér stað í landinu um tækifæri þjóðarinnar til að stórauka nýtingu á íslensku metaneldsneyti í samgöngum í stað innflutts bensíns og dísilolíu. Áherslurnar samræmast jafnframt markmiðum borgarinnar og stjórnvalda í landinu í umhverfismálum og loftslagsmálum.
Jafnframt tók borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, í notkun metanfólksbíl fyrri á þessu ári og nýtir því íslenskt metaneldsneyti á för sinnu um höfuðborgina þegar hann notar vélknúið
ökutæki. Og án þess að losa gróðurhúsalofttegundir af jarðefnauppruna í akstri. Reynslan af notkun bílsins hefur verið góða að sögn bílstjóra borgarinnar, Rúnars Sveinssonar. Með hverjum lítra af bensíni sem borgarstjórinn spara bruna á með notkun á íslensku metani sparar hann losun á gróðurhúsalofttegundum af jarðefnauppruna út í andrúmsloftið og lofthjúp jarðar sem nemur um 2,3kg af CO2 af jarðefnauppruna fyrir hvern lítra af bensíni sem ekki er brenndur. Þar fyrir utan sparar borgarstjórinn gjaldeyri með akstri á íslensku metani sem nemur um og yfir 36% af dæluverði bensíns. Borgarstjórinn viðhefur því virkilega samfélagslega ábyrga notkun á vélknúnu ökutæki þá þörf er á fyrir hann að nota fólksbíl á höfuðborgarsvæðinu.
Með óskum borgarinnar eftir 49 metan/bensínbílum tekur borgin með nýjum hætti þátt í þeirri þróun sem hefur orðið í eftirspur eftir bættu dreifikerfi og auknu framboði á íslensku metni fyrir almenning á höfuðborgarsvæðinu og í landinu.
Á götum höfuðborgarinnar í dag má sjá um 100 gerðir ökutækja sem nýta íslenskt metaneldsneyti í akstri. Síðustu mánuði hefur ökutækjum fjölgað mest með uppfærslu á bensínbílum í metan/bensinbíla en nýjum metan/bensínbílum fjölgar einnig meira en áður. Að neðan er listi yfir mismunandi gerði bíla sem uppfærðir hafa verið í landinu:
Audi A4 turbo, BMW 540, BMW 730, Cadillac Escelade, Cherokee, Chevrolet Cruze (nýr) , Chevrolet Lacetti, Chevrolet Silverado, Chevrolet Suburban, Chrysler Crysler Town and Country, Dodge Dakoda, Dodge Durango, Dodge Power wagon, Dodge Ram (nýr), Dodge Ram 1500, Dodge Ram 2500, Ford Econoline, Ford Escape, Ford Expedition, Ford Explorer Sport Trac, Ford F 150, Ford Focus, Ford Ranger, Ford Transporter, GMC, GMC Denali, GMC Envoy, GMC Yukon Denali, Grand Cherokee, Honda Accord, Honda Civic, Honda CRV, Hyundai Getz, Hyundai Santa Fe, Hyundai Sonata, Hyundai Trajet, Hyundai Tucson, Infiniti QX 56, Kangoo-sendibíll, Lexus Jeppi, Lexus RX 300, Lincoln Navigator, Lincoln Continental, Lincoln Mark LT, Lincoln town & country, Man 18/440, Mazda 3, Mazda 6, Mercedes Bens Actros, Mercedes Benz C230, Mercedes Benz G 500, Mercedes Benz-B, MMC Pajero Sport, Nissan Armada, Nissan Murano, Opel Astra, Peugeot 307, Peugot 407, Pontiac, Range Rover, Renault Kangoo, Renault Master, Renault Megane, Saab 93T, Scania R500, Skoda Fabia, Skoda Oktavia, Skoda Suburb, Subaru Legacy, Subaru Outback, Suzuki Jimni, Suzuki Vitara, Toyata Tacoma, Toyota Avensis, Toyota Corolla, Toyota Hiace, Toyota Land Cruiser 100, Toyota Land Sruiser 200, Toyota Previa, Toyota Rav4, Toyota Tundra, Toyota Yaris, VW Caddy, VW Passat, VW Touareg, VW Transporter .
Þær gerði fólksbíla og sendibíla sem nýta íslenskt metaneldsneyti í akstri á höfuðborgarsvæðinu og komu til landsins sem gerðarvottaðir metan/bensínbílar frá framleiðanda eða öðrum gerðarvottanda eru þessar helstar ( í röð eftir fjölda í umferð) : VW Passat EcoFuel, VW Caddy EcoFuel, VW Tauran EcoFuel, Mercedes Benz B-class NGT, Mercedes Benz Sprinter NGT, Toyota Land Cruiser, Ford Focus, Mercedes Benz E-class NGT og Opel Safira. Flestir bílaframleiðendur heims framleiða bíla í dag sem nýtt geta íslenskt metan í akstri og framboð eykst ár frá ári.
Heildarfjöldi ökutækja í heiminum sem nýtt geta metaneldsneyti í akstri er kominn hátt á annan tug milljóna og hefur aukist hratt síðastliðin 5 ár. Þess er því að vænta á komandi misserum og árum að framboð íslenskrar bifreiðaumboða á metan/bensínbílum muni aukast mikið. Ökutækjum fjölgar einnig hratt í heiminum sem nýta eingöngu metaneldsneyti í akstri og þá í takt við bætt dreifikerfi fyrir metaneldsneyti auk þess sem ökutækjum fjölgar einnig sem styðjast við svokallað tvinn orkukerfi metan/rafmagn (e. hybrid CNG/EV). Nýting á metaneldsneyti í samgöngum verður því fyrirsjáanlega mikil í heiminum á þessari öld.
Óskir Reykjavíkurborgar eftir 49 bílum sem nýtt geta íslenskt metan í akstri markar tímamót í sögu orkukerfisskipta á höfuðborgarsvæðinu og í landinu og varpar ljósi á þau tækifæri sem þjóðinni stendur til boða að nýta í stórauknum mæli á komandi misserum og árum. Borgaryfirvöld eiga hrós skilið fyrir að nýta tækifæri til hagfelldra og umhverfismildra orkukerfisskipta í samgöngum sem lúta að almannaheill og auknu orkukerfissjálfstæði í landinu.
Sjá frétt um metanbíl borgarstjóra








