English   |   Forsíða   |   Veftré   |   Hafa samband

Hráefni til metanframleiðslu

Metan eldsneytið er unnt að framleiða út öllu lífrænu efni á yfirborði jarðar, nútíma-metan. Sú mikla þróun sem hefur átt sér stað í framleiðslu og dreifingu á metan eldsneyti, hefur gert það að verkum að um allan heim er horft til metanvæðingar í samgöngum sem veigamikils þáttar við umhverfisvæn orkukerfisskipti í samgöngum á þessari öld. Einnig vegur þungt að metanvæðingin gerir þjóðum heims kleift að stórauka orkuöryggi sitt með sjálfbærum og endurnýjanlegum hætti.

Þökk sé einstöku frumkvöðlastarfi forsvarsmanna sorphirðumála á höfuðborgarsvæðinu hefur íslenskt metan verið framleitt á Álfsnesi frá árinu 2000 og í dag framleiðir SORPA bs nútíma-metan eldsneyti í hæsta gæðaflokki með allt að 98% hreinleika, 125-130 oktan eldsneyti. Framleiðsla SORPU bs á Álfsnesi í dag er þó aðeins lítið brot af því sem unnt er að framleiða af nútíma-metan eldsneyti á höfuðborgarsvæðinu og í landinu að öðru leiti. Áform eru uppi um að reisa verksmiðju á höfuðborgarsvæðinu sem framleiðir nútíma-metan eldsneyti úr lífrænu efni af ýmsum toga.


Hráefni sem nýtta má til framleiðslu á metan ökutækjaeldsneyti og mun verða nýtt á Íslandi eins og víða um heim :

I   Nútíma-metan - unnið úr lífrænu efni á yfirborði jarðar:
·  Allt lífrænt efni frá heimilum - matarleifar og annar úrgangur, gras og fleira.
·  Allur lífrænn úrgangur frá atvinnustarfsemi - matarleifar og annar úrgangur.
·  Seyra /skólp - dæmi, ökutæki í rekstri Stokkhólmsborgar ganga fyrir metani unnu úr seyru
   frá holræsakerfi borgarinnar.
·  Lífmassi í sjávarútvegi - fiskúrgangur og allur annar lífrænn úrgangur.
·  Lífmassi frá matvælavinnslu - sláturúrgangur og allur annar lífrænn úrgangur.
·  Ræktun á orkuplöntum - uppgræðsla lands og nýting á lífmassa.
·  Þörungar úr sjó og vötnum- ræktun.
·  Margt annað mætti nefna.

Ofangreint hráefni má allt vinna í verksmiðju

II  Fyrritíma-metan - unnið úr lífrænu efni sem var á yfirborði jarða í fortíðinni:
·  Jarðgas - mikið magn til víða um heim og líkindi standa til að það sé að finna á 
   Drekasvæðinu við Ísland.
·  Innflutningur á nútíma-metani eða jarðgasi – mikið framboð af metani er á  heimsmarkaði
   og verð mun lægra en á bensín og dísilolíu - gjaldeyrissparnaður. 

Með fyrritíma-metani er unnt að tryggja framboð og samkeppni á markaði ef innanlandsfrmleiðsla á nútíma-metani nær tímabundið ekki að anna eftirspurn.

Víða um heim er metan framleitt í sérstökum verksmiðjum úr lífrænum úrgangi frá heimilum, landbúnaði og annarri atvinnustarfsemi. Einnig er víða unnt að rækta orkuplöntur til framleiðslu á metani og er þá unnt að nýta allan lífmassa orkuplantanna til framleiðslunnar. Leifarnar úr framleiðsluferli á nútíma-metan eldsneyti er næringarríkt hrat ( áburður) sem nýtist mjög vel til uppgræðslu lands eða næstu kynslóðar af orkuplöntum. Hér er því um að ræða góða nýtingu og sjálfbæra hringrás. Jafnframt má framleiða metan eldsneyti úr seyru og mykju. Svo dæmi sé tekið má geta þess að Í Stokkhólmi eru flest ökutæki í rekstri borgarinnar knúin metan eldsneyti sem unnið er úr lífrænu efni frá holræsakerfi borgarinnar.

Ljóst er að framleiðslugeta á metan eldsneyti á Íslandi er mun meiri en þjóðin mun fyrirsjáanlega þurfa til að knýja öll samgöngutæki landsins á landi og sjó ef því er að skipta. Framtíðin mun leiða í ljós hversu hátt hlutfall af orkunotkun í samgöngum mun reynast hagfellt að byggja á nútíma-metaneldsneyti en öllum er ljóst að stórfeld aukning á notkun þess er hagfelld og fyrirsjáanleg - enginn ágreiningur er um það.

Margar þjóðir búa einnig yfir auðlindum í jarðskorpunni í formi jarðgass (fyrritíma-metan) sem inniheldur 50-90% metan eftir landsvæðum og því fyrirsjáanleg mikil aukning á notkun þess í samgöngum í framtíðinni. Stóraukið framboð öktækja og véla í heiminum sem ganga fyrir metaneldsneyti endurspeglar þá staðreynd. Notkun á metan ökutækjaeldsneyti sem unnið er úr jarðgasi ( e. Natural Gas, NG eða Compressed Natural Gas, CNG eða Liquifed Natural Gas, LNG) skapar hlutfallslega mikinn umhverfislegan ávinning í samanburði við notkun á bensíni, dísilolíu eða orkukerfi sem byggir á rafhlöðu. Metan eldsneyti sem unnið er úr lífrænu efni á yfirborði jarðar í dag (nútíma-metan) skapar þó enn meiri umhverfislegan ávinning.

Á Orkuþingi 2009 kom fram að líkindi standa til að á Drekasvæðinu kunni að vera jarðgas að finna í vinnanlegu magni. Öllum má því vera ljóst að stóraukin metanvæðing í samgöngum þjóðarinnar er meira en raunhæfur valkostur á landi sem legi til framtíðar litið. Metanvæðing í íslenskum samgöngum er á græni grein á þessari öld.

Sjá sýn sérfræðinga um þróun mála í Bandaríkjunum ( hér )